Bjóðum upp á persónulega og notalega þjónustu
Við veitum alhliða þjónustu við öll gæludýr. Bóka tíma
Við erum staðsett miðsvæðis við eina skemoomtilegustu götu borgarinnar, Skólavörðustíginn, en þar er alltaf líf og fjör.
Á lóðinni við stofuna eru bílastæði fyrir viðskiptamenn. Stofan er lítil og heimilisleg og alltaf heitt kaffi á könnunni.
Biðtími er stuttur, því mest allt eru tímapantanir. Stofan er vel tækjum búin. Við höfum nýlega breytt opnunartímanum og höfum opið frá kl 8:00 til 17:00 á virkum dögum.
Við hvetjum ykkur eindregið til að hafa samband við okkur í síma 552-3621 ef þið hafið einhverjar spurningar.
Utan opnunartíma er sími 530-4888. Bakvaktarþjónusta er ætluð alvarlega veikum eða slösuðum dýrum. Útkall dýralæknis á bakvakt kostar almennt um 35.000 krónur, sem bætist við dýralæknaþjónustuna. Á stórhátíðardögum og um nætur (00:00-07:50) er útkallið um 48000.