Upplýsingar til eiganda vegna Þurrt auga (KCS)
Hvað er Keratoconjunktivitis Sicca / þurrt auga
Þetta er sjúkdómur sem kemur upp sökum þess að framleiðsla á hluta af táravökvanum, nánar tiltekið vatnslega hlutanum minnkar, þessi hluti táravökvans er framleiddur í 2 mismunandi kirtlum sem staðsettir eru í augnlokunum. Algengasta ástæðan fyrir að þetta gerist er að ofnæmiskerfi líkamans ræðst á kirtilinn svo framleiðslan minnkar. En framleiðsla af fitu hluta og slímkennda hluta tárana helst þó áfram í lagi, þetta skýrir afhverju eitt einkennið er að augun eru oft með mikla slímkennda útferð.
Afhverju eru tárin mikilvæg ?
- Hjálpar til við að fá skýrari sjón
- Smyr augnlokin
- Koma með næringu og fjarægja úrgangsefni
- Koma í veg fyrir sýkingar
- Fjarlægja aðskotahluti af hornhimnunni
- Stjórnar Sýrustigi í ystalagi hornhimnunar.
Hvað getur valdið sjúkdómnum:
Það eru margir þættir sem geta valdið minnkun á táraframleiðslu. Vandamálið er hvað þekktast hjá hundum, en getur einnig komið upp hjá köttum. Ákveðnar hundtegundir eru líklegri á að fá sjúkdóminn. Lang algengasta ástæðan er að ofnæmiskerfið ræðst á tárakirlana. Aðrir möguleikar sem þó mun sjaldgjæfari eru, sýkingar t.d í miðeyra eða herpesvírus sem trufla taugaboð til kirtilsins. næringarlegarástæður eins og skortur á A vítamíni, eitranir, krabbamein, vanvirkur skjaldkirtill, króniskt nýrnavandamál og skaði á kirtlinum eða tauginni sem stýrir kirtlaframleiðslunni.
Tegundir sem eru í aukinni hættu :
- American og Enskur cocker spaniel
- Cavalier King Charles Spaniel
- Minature Schnauzer
- West Higland White Terrier
- Bulldog
- Boston Terrier
- Lasha Apso
- Shih Tzu (getur verið meðfætt)
- Yorkshire Terrier (er oft vegna vöntun á kirtlavef)
- Pekingese
- Pug
- Samoyed
- Blóðhundur
Einkenni sjúkdómsins:
Líflaus augnslímhúð og hornhimna, roði og bólga í slímhúð. Gældýrið pírir augun/augað sökum verkja, aukið slím í augunum og getur verið með eða án sýkingar og bólga eða sár á hornhimnu. Ef ástandið er mjög slæmt þá er komin bjúgur í hornhimnuna (hún verður bláleit á litin) , getur farið að vaxa æðar í hornhimnunni og dökknun (pigmentering) á henni. Hjá köttum sést oft þurrt nef og hornhimnu seqestrum,sem er þrálátt sár sem grær ekki með dökk brúnni miðju.
Getur komið upp á öðru auganu eða báðum.
Greining: Er gerð með mælingu á táraframleiðslun sem er einfalt próf
Shcirmes tear test (STT), Hvítum strimli er komið fyrir undir augnlokinu og haldið þar í 1 minótu, svo er mælt hve langt tárin ná á strimlinum
- Normal yfir 15 mm
- Borderline milli 11-15mm
- Látt undir 10 mm
- Mjög Látt undir 5 mm
Meðhöndlun :
Mjög mikilvægt er að ná niður sýkingunni fyrst með sýklalyfjum. Ef hornhimnusár þá nota Oftaquix 6 x á dag í 7 daga, ef ekki sár þá er Fusithalamic 2 x á dag oft hentugt.
- Optimmune Augnsmysl (cyclosporine)
Byrjað er að nota þetta lyf eftir að notkun á sýklalyfi í augað er hætt.
Notist ca 1/2 cm 2 x á dag fyrstu vikurnar. Endurkoma til að mæla aftur
táraframleiðslu ca eftir 3-4 vikur.
Framfarir sjást í um 80% tilfella. Ef góð svörun er hægt að minnka
meðhöndlun niður í 1 x á dag og jafnvel enn neðar annanhvern dag eða
meðhöndlun 2-3 x í viku til að viðhalda þegar búið er að ná upp eðlilegri
táraframleðislu. Getur tekið allt að 4-6 vikur til að sjáist verulegur munur
- Gervitár
Nota samhliða sýklalyfjanotkun og optimmune notkun meðan er verið að ná upp táraframleiðslunni. Nota 4-6 x á dag. Ekki setja dropa í fyrr en 5 mínótur eru liðnar frá meðhöndlun með öðrum lyfjum
Skurðaðgerð Aðeins augnlæknasérfræðingar gera. Ekki hægt hjá öllum tegundunum en þarna er duct frá parotis munnvatnskirtlinum leitt upp í augað.
Gefur hugtakinu I got a spitt in my eye nýja þýðingu !!!
Agnes á Dýraspítaanum í Garðabæ er mögulega að byrja að gera slíkar aðgerðir hér á landi.
Mikilvægt að:
- Meðhöndlun með Optimmune er þörf það sem eftir er af lífi hundsins.
- Meðhöndla þarf sýkingar strax og þær koma upp
- Reglubundið eftirlit hjá dýralækni séstaklega í byrjun þegar er verið að meta áhrif meðhöndlunar og finna rétt bil milli meðhöndlunina. Daginn sem á að koma með hundinn í endurkomu og mælingu á táraframleiðslunni er mikilvægt að gæludýrið sé ekki meðhöndlað með neinum lyfjum eða augndropum þann daginn.
Ef einhvað er óljóst eða kemur uppá ekki hika við að hafa samband við okkur.