Dýralæknastofa Dagfinns tekur þátt í vöktum á Reykjavíkur svæðinu. Er dýralæknir frá Dagfinni þá á vakt 3-4 sinnum í mánuði á dýralæknastofu Dagfinns í miðbæ Reykjavíkur. Hringt er í 5304888 og er gefið samband við dýralækni. Mikilvægt er að virða álag dýralæna á vöktunum þar sem einungis einn dýralæknir er á vakt fyrir allt Stór Reykjavíkur svæðið og því mikið álag. Ekki hringja á vaktina til dýralæknis fyrir tilfelli sem mögulega geta beðið til morguns eða eftir helgina þegar dýralæknastofur eru opnar. Ekki láta börn hringja á vaktina í dýralæknaþjónustuna, þetta er neyðarþjónusta en ekki spjallrás. Ekki vekja dýralækninn að nóttu nema bráð nauðsyn er til að kalla til dýralækni.
Við hjá Dýralæknastofu Dagfinns erum með opið frá 8:30 til 17.00 virka daga.
Viðskiptavinur eru beðnir að taka tillit og bíða úti eða við útidyr á meðan pláss fæst fyrir næsta kúnna innan dyra.
Gott era ð afhenda dýrin til dýralækni á meðan er verið að skoða þau og fá afhent eftir aðgerð eða skoðun.
Vinsamlegast þvoið hendur og sprittið er inn er komið og notið hanska sem liggja frammi.
Sometimes when you are petting your cat or dog you can notice a lump on the skin. Some of these masses are slow growing, some of them are growing quickly. We should remember that even a minor injury can cause a bump. There is possibility that it will heal on its own but sometimes the wound can be infected and it forms the abscess. The abscesses are often red and painful, the cats need antibiotic and anti-inflammatory medications.
There are a few possibilities to categorize lumps. There are many different types of benign and malignant skin masses. Most often we can see the lipomas, called also fatty tumors, which are not cancerous or dangerous for an animal. They do not need to be removed if they do not bother a cat or a dog. To diagnose this kind of lump we use a needle to get a sample.
Other type of masses are mast cell tumors which can appear on the skin, usually on the head or neck. There is possibility that they can be itchy or cancerous. One of the very common masses is mammary gland tumor, which can appear near nipples.
After the diagnosis it is important to decide if the lump should be removed or not.
Upplýsingar til eiganda vegna Þurrt auga (KCS)
Hvað er Keratoconjunktivitis Sicca / þurrt auga
Þetta er sjúkdómur sem kemur upp sökum þess að framleiðsla á hluta af táravökvanum, nánar tiltekið vatnslega hlutanum minnkar, þessi hluti táravökvans er framleiddur í 2 mismunandi kirtlum sem staðsettir eru í augnlokunum. Algengasta ástæðan fyrir að þetta gerist er að ofnæmiskerfi líkamans ræðst á kirtilinn svo framleiðslan minnkar. En framleiðsla af fitu hluta og slímkennda hluta tárana helst þó áfram í lagi, þetta skýrir afhverju eitt einkennið er að augun eru oft með mikla slímkennda útferð.
Afhverju eru tárin mikilvæg ?
- Hjálpar til við að fá skýrari sjón
- Smyr augnlokin
- Koma með næringu og fjarægja úrgangsefni
- Koma í veg fyrir sýkingar
- Fjarlægja aðskotahluti af hornhimnunni
- Stjórnar Sýrustigi í ystalagi hornhimnunar.
Hvað getur valdið sjúkdómnum:
Það eru margir þættir sem geta valdið minnkun á táraframleiðslu. Vandamálið er hvað þekktast hjá hundum, en getur einnig komið upp hjá köttum. Ákveðnar hundtegundir eru líklegri á að fá sjúkdóminn. Lang algengasta ástæðan er að ofnæmiskerfið ræðst á tárakirlana. Aðrir möguleikar sem þó mun sjaldgjæfari eru, sýkingar t.d í miðeyra eða herpesvírus sem trufla taugaboð til kirtilsins. næringarlegarástæður eins og skortur á A vítamíni, eitranir, krabbamein, vanvirkur skjaldkirtill, króniskt nýrnavandamál og skaði á kirtlinum eða tauginni sem stýrir kirtlaframleiðslunni.
Tegundir sem eru í aukinni hættu :
- American og Enskur cocker spaniel
- Cavalier King Charles Spaniel
- Minature Schnauzer
- West Higland White Terrier
- Bulldog
- Boston Terrier
- Lasha Apso
- Shih Tzu (getur verið meðfætt)
- Yorkshire Terrier (er oft vegna vöntun á kirtlavef)
- Pekingese
- Pug
- Samoyed
- Blóðhundur
Einkenni sjúkdómsins:
Líflaus augnslímhúð og hornhimna, roði og bólga í slímhúð. Gældýrið pírir augun/augað sökum verkja, aukið slím í augunum og getur verið með eða án sýkingar og bólga eða sár á hornhimnu. Ef ástandið er mjög slæmt þá er komin bjúgur í hornhimnuna (hún verður bláleit á litin) , getur farið að vaxa æðar í hornhimnunni og dökknun (pigmentering) á henni. Hjá köttum sést oft þurrt nef og hornhimnu seqestrum,sem er þrálátt sár sem grær ekki með dökk brúnni miðju.
Getur komið upp á öðru auganu eða báðum.
Greining: Er gerð með mælingu á táraframleiðslun sem er einfalt próf
Shcirmes tear test (STT), Hvítum strimli er komið fyrir undir augnlokinu og haldið þar í 1 minótu, svo er mælt hve langt tárin ná á strimlinum
- Normal yfir 15 mm
- Borderline milli 11-15mm
- Látt undir 10 mm
- Mjög Látt undir 5 mm
Meðhöndlun :
Mjög mikilvægt er að ná niður sýkingunni fyrst með sýklalyfjum. Ef hornhimnusár þá nota Oftaquix 6 x á dag í 7 daga, ef ekki sár þá er Fusithalamic 2 x á dag oft hentugt.
- Optimmune Augnsmysl (cyclosporine)
Byrjað er að nota þetta lyf eftir að notkun á sýklalyfi í augað er hætt.
Notist ca 1/2 cm 2 x á dag fyrstu vikurnar. Endurkoma til að mæla aftur
táraframleiðslu ca eftir 3-4 vikur.
Framfarir sjást í um 80% tilfella. Ef góð svörun er hægt að minnka
meðhöndlun niður í 1 x á dag og jafnvel enn neðar annanhvern dag eða
meðhöndlun 2-3 x í viku til að viðhalda þegar búið er að ná upp eðlilegri
táraframleðislu. Getur tekið allt að 4-6 vikur til að sjáist verulegur munur
- Gervitár
Nota samhliða sýklalyfjanotkun og optimmune notkun meðan er verið að ná upp táraframleiðslunni. Nota 4-6 x á dag. Ekki setja dropa í fyrr en 5 mínótur eru liðnar frá meðhöndlun með öðrum lyfjum
Skurðaðgerð Aðeins augnlæknasérfræðingar gera. Ekki hægt hjá öllum tegundunum en þarna er duct frá parotis munnvatnskirtlinum leitt upp í augað.
Gefur hugtakinu I got a spitt in my eye nýja þýðingu !!!
Agnes á Dýraspítaanum í Garðabæ er mögulega að byrja að gera slíkar aðgerðir hér á landi.
Mikilvægt að:
- Meðhöndlun með Optimmune er þörf það sem eftir er af lífi hundsins.
- Meðhöndla þarf sýkingar strax og þær koma upp
- Reglubundið eftirlit hjá dýralækni séstaklega í byrjun þegar er verið að meta áhrif meðhöndlunar og finna rétt bil milli meðhöndlunina. Daginn sem á að koma með hundinn í endurkomu og mælingu á táraframleiðslunni er mikilvægt að gæludýrið sé ekki meðhöndlað með neinum lyfjum eða augndropum þann daginn.
Ef einhvað er óljóst eða kemur uppá ekki hika við að hafa samband við okkur.
Framleiðsla af cortisol hormóni er ofaukið
Curshing /Hyperadrenocorticism/ Framleiðsla af cortisol hormóni er ofaukið.
Þetta er sjúkdómur sem getur komið upp hjá hundum, hestum, köttum og einnig hjá mönnum. Það sem gerist er að framleiðsla á hormóni sem kallast cortisol verður of mikið. Cortisol er framleitt og geymist í adrenal glands/nýrnahettunum sem eru litlir kirtlar sem sitja ofan við nýrun.
Cortisol er í raun likamanns náttulegt steralyf, þar sem í eðlilegu magni er nauðsynlegt og hjálpar líkamanum að aðlagast á tímum mikils stress, hjálpar til við að viðhalda réttri þyngd og húðinni góðri ásamt fleiri þáttum sem við koma góðri heilsu.
En of mikið cortisol veldur veikingu á ofnæmiskerfinu og gerir líkamann veikari fyrir öðrum sjúkdómum og sýkingum.
Tvær týpur af Curshing
Um 80-85% tilfella hjá hundum er heiladynguls æxlis tengdur curshing, þar sem æxli oftast góðkynja myndast í pituitary svæði í höfðinu, þetta er litll kirtill sem er staðsettur upp við heilan.
Um 10-15 % tilfella er aftur á móti af völdum æxlismyndun í nýrnahettunum (adrenal glands) og getur það komið fyrir í öðrum eða báðum kirtlunum, þetta æxli getur bæði verið góðkynja og illkynja.
Einkenni Curshing
Þessi sjúkdómur sést oftast hjá miðaldra og eldri dýrum. Yfirleitt þróast sjúkdómurinn hægt og einkennin oft væg í byrjun sem því oft uppgötvast ekki fyrr en seint í sjúkdómsferlinum
- Aukinn þosti
- Aukið pissustand
- Aukinn matarlyst
- Minni hreyfing
- Anda oft með munnin opinn og tunguna út
- Þunn viðkvæm húð sem fær auðveldara marbletti
- Aukið hárlos
- Auðveldara með að fá húðsýkingar
- Aukinn magi, fær meira útblásin maga
- Tap á vöðvamassa og slappir vöðvar
Ef Cursing sjúkdómurinn er látinn vera ómeðhöndlað getur það aukið líkurnar á öðrum alvarlegum sjúkdómum, eins og sykursýki, blóðrappa í lungum, skemmd í nýrnavef, þvagfærasýkingum og brisbólgum.
Meðhöndlun:
Flestir dýralæknar meðhöndla báðar týpur af curshing með lyfjagjöf. Möguleiki á að fjarlægja æxli í nýrnahettunum er til staðar ef æxlið hefur ekki dreyft sér, en þetta er áhættusöm aðgerð svo yfirleitt er hún ekki valin, einnig ef um heiladyngulsæxli er að ræða sem er algengar tegundin af cursing eru engir dýralæknar sem framkvæma slíkar aðgerðir hér á landi og er ennþá verið að rannsaka áhrif þessara skurðaðgerða erlendis.
Meðhöndlun með lyfjum er þá meðhöndlun sem dýrið mun þurfa á að halda það sem eftir er af sínu lífi. Dýralæknirinn mun þurfa að fylgjast vel með dýrinu séstaklega í byrjun meðhöndlunar meðan ef verið að stilla af skammtastærð sem þarf oft að gera smávægilegar breytingar á. Þetta er gert með blóðprufum, fyrstu mánuðina og svo á nokkra mánaða fresti eftir það, fer eftir hve vel dýrið svarar meðhöndlun og hvernig dýrið er að þola meðhöndlunina.
Lyfið Vetoryl (trilostane) eru hylki, sem er nýjasta lyfið sem er komið með leyfi til notkunar til að meðhöndla curshing hjá hundum, lyfið er eina lyfið sem getur verið notað til að meðhöndla bæði heiladynguls curshing og nýrnahettu cursing. Þar sem lyfið virkar þannig að það stoppar framleiðslu cortisols í nýrnahettunum.
Algengustu aukaverkanir sem koma upp við notkun Vetoryl eru
- Uppköst
- Minnkuð matarlyst
- Orkuleysi
- Niðurgangur
- Þyngdartap
- Skjálfti
Einstaka sinnum sjást alvarlegri aukaverknir, eins og mjög mikil deyfð, blóðugur niðurgangur, yfirlið, einnig getur þetta leitt til hypoadrenalcorticism/ Addison crisis, sem er ef sjúkdómurinn fer í hina áttina og líkaminn framleiðir þá of litið magn af cortisol og getur verið lífshættulegur sjúkdómur.
Hann lýsir sér þannig, dýrið hættir oft að borða /anorexia, aukið svefnhöfgi, mjög mikil deyfð og slappleiki, dýrið getur fallið í yfirlið, Ef einhver þessara einkenna koma fram skal haft strax samband við dýralækni. einkenni sem koma í ljós í skoðun hjá dýralækni er of hægur hjartsláttur, breytingar á söltum likamanns sjást í blóðprufum eins og of látt natrium og of hátt kalíum.
Taka þarf svo cortisol blóðprufu til að fá endanlegastaðfest um of látt cortisol. Ef upp kemur þessi sjúkdómur er stuðningsmeðhöndlun og dýrinu er gefið sterar til að auka cortisol magnið í blóði.
hagnýtar upplýsingar um notkun á Vetoryl
Table 1: Starting dose
Pund kg mg startdose
≥ 3.8 to < 10 ≥ 1.7 to < 4.5 10
≥ 10 to < 22 ≥ 4.5 to < 10 30
≥ 22 to < 44 ≥ 10 to < 20 60
≥ 44 to < 88 ≥ 20 to < 40 120 (2 × 60 mg)
≥ 88 to < 132* ≥ 40 to < 60* 180 (3 × 60 mg)
Lyfið er gefið 1 x á dag með mat. Best að gefa á morgnana.
Eftir 2 vikur á lyfinu kemur dýrið í skoðun, þá er rætt um hvernig dýrið er búið að hafa það hvort eigandi hefur tekið eftir minnkun á matarlyst, hvort dýrið drekki minna og pissi minna og hvort sé farinn að taka eftir aukinni orku hjá dýrinu, skoðun á dýrinu og teknar blóðprufur til að sjá hvort þurfi að gera einhverjar breytingar á skammtastærð á lyfinu. Best er að taka blóðprufu 4-6 klst eftir lyfjagjöf.
Eftir 4 vikur þarf aftur að meta stöðuna.
Eftir 12 vikur þarf enn og aftur að taka stöðuna á dýrinu Svo er viðmið að koma í skoðun ca á 3-4 mánaða fresti. Nema ef einhverjir sjúkdómar koma upp hjá hundinum eða hann fer að sýna einkenni Curshing aftur.
Góð ráð:
Ekki skipta töflunum upp
Ekki gefa tvöfaldan skammt ef gleymist að gefa lyfið, bara gefa réttan skammt á réttum tíma næsta gjafartíma
Ekki meðhöndla lyfið ef þú ert ófrísk eða reyna að verða ófrísk
Ekki breyta skammti án þess að ráðfæra þig við dýralækni
Ekki hætta skyndilega að gefa lyfið þar sem lyfið heldur aðeins sjúkdómnum í skjefjum en læknar hann ekki. Aðeins hætta notkun þeirra ef dýralæknir ráðleggur það eða ef hundurinn er veikur.
Þú skalt þvo þér um hendurnar eftir að hafa gefið lyfið. Ekki ætlað mönnum og skal geymt þar sem börn ná ekki til.
Gefðu lyfið á morgnana með mat
Lyfið skal geymt við stofuhita.
Þú verður að taka dýrið til dýralæknis í reglulegt eftirlit
Gott er að skrá niður þyngd dýrsins, hve mikið hann drekkur, hve mikið hann borðar og hve oft hann pissar áður enn þú byrjar á lyfjunum, því það auðveldar að fylgjast með hve vel meðhöndlunin gengur.
Gott er að taka myndir af hundinum fyrir meðhöndlun og svo reglulega meðan á meðhöndlun stendur, því myndir sýna betur smávægilegar breytingar sem gerast hægt
Skalt hafa samband strax við dýralækni ef dýrið verður veikt, eða hættir að borða eða drekka meðan er að taka vetroyl.
14.07.2015
tekið saman af Helga Sigríður Úlfarsdóttir
Æxlunarfræði Hunda
Kynþroski:
Kynþroski og fyrsta lóðarí hjá tíkum er algengast milli 6 og 9 mánaða (4-24 mánaða þekkist) Því stærri sem hundategundin er því seinna verða þær kynþroska. Karlhundarnir ná kynþroska eftir 5 mánaða, algengt að það sé einum mánuði eftir tíkunum úr sama goti. Ekki er ráðlagt að para tíkur fyrr en eftir 2 ára. Rakka á ekki að nota til parana fyrr en eftir 1 árs.
Lóðarí:
Tíkur geta lóðað 1-3 x á ári. Algengast er 2 x á ári. Litlar hundategundir eru gjarnari á að lóða oftar á ári, en stærri tegundir frekar sjaldnar. Fyrsta lóðarí getur oft farið frekar leynt og eigendur átta sig oft ekki á því, sama á til að gerast þegar tíkur eru orðnar gamlar.
Lóðarí skiptist í 3 tímabil:
- 1.Lóðarí hefst með blæðingum sem standa yfir í mislangan tíma eftir tíkum. Meðallengd 9 dagar (3-20 dagar). Á þessum tíma bólgna ytri kynfæri tíkarinnar og verða hörð viðkomu. Tíkin oft leiknari og æstari en alla jafna. Rakkar sýna henni áhuga en hún er ekki spennt fyrir þeim. Yfirleitt dregur svo úr blæðingunum smá saman.
- Tíkin fer svo inn í eiginlegt lóðartímabil þar sem tíkinn stendur fyrir rakka. Mjög mismunandi lengd er á þessu tímabili hjá tíkum allt frá 1-10 dagar. Í lok þessa tímabils þá á sér stað egglos. Ytri kynfæri eru ennþá þrútin og verða örlítið mýkri viðkomu. Tíkin sækir í karlhunda og jafnvel stillir sér upp fyrir þá. Hægt er að prufa að klóra tíkinni aftarlega við rófu eða aftan á læri og sjá hvort hún lyfti rófunni upp og til hliðar. Gott að
gera þetta til að átta sig á hve lengi þetta tímabil stendur yfir hjá tíkinni.
- Eftir tíman sem hún stendur fyrir karlhund tekur við loka tími lóðarís 2-4 dagar þar sem er dekkri útferð, meiri lykt og minna bólgin ytri kynfæri, Rakkar sýna tíkinni enn áhuga. Ef para á tík er gott að vita hvernig hennar venjulega lóðarí er, vera búin að punkta hjá sér hve lengi blæðir og hversu marga daga sem hún er tilbúin að standa fyrir rakka.
Er tíkin hvolpafull?
Mikilvægt að ganga úr skugga um hvort tíkin sé hvolpafull til að hægt sé að gera ráðstafanir fyrir tíkina og hvolpana ef á að láta tíkina eignast gotið, eða ef um óæskilega pörun er að ræða svo sé hægt að grípa inn í.
- Þreyfing á kvið. Hægt um 3 vikur eftir pörun, ónákvæmt, erfitt ef tíkur eru of feitar og getur þetta líka verið svipað og að þreyfa sjúkdóm sem kallast legbólga.
- Sónar. Hægt að framkvæma frá degi 21 eftir pörun, mögulegt að greina hjartslátt hjá hvolpunum eftir dag 28.
- Röntgenmyndataka. Mikið notuð til að telja fóstur fyrir got. Gert eftir dag 50
Óvænt/óæskileg pörun:
Ef slyspörun á sér stað er hægt að láta sprauta úr tíkinni hvolpana. Ástæðurnar fyrir þessu geta verið margar. Eigandi getur ekki staðið í goti og því sem því fylgir, ef tík er of ung fyrir got, eða ef lítil tík parast með mjög stórum hundi og því meiri hætta á fæðingarerfileikum.
Í dag notast dýralæknar við lyfið Alizin vet. Það er mjög öruggt lyf með fáum aukaverkunum fyrir tíkina. Lyfið er þó dýrt og er það dýrara fyrir þyngri hunda þar sem lyfið er gefið eftir þyngd. Koma þarf 2 x til dýralæknis með 24 tíma millibili í sprautur.
Mikilvægt fyrir eiganda að vita að eftir fóstureyðingu með dýralyfinu hefst egglosunartímabil oft fljótt (tími milli egglosunartímabila styttist oft um 1-3 mánuði).
Mögulegar aukaverkanir eru sársauki meðan lyfið er gefið, staðbundin bólgusvörun á stungustað, bjúgur, þykknun húðar, staðbundin stækkun eitla og sáramyndun getur komið fyrir, aðrar enn sjaldgæfari eru lystarleysi, æsing, deyfð, uppköst, niðurgangur og legsýking.
Hægt er að nota lyfið strax eftir slysapörun og fram til dags 45 á meðgöngu til að framkalla fósturlát. Bestur árangur næst því fyrr sem þetta er gert. Þó gæti verið gott að bíða með að sprauta úr tíkinni þar til lóðaríið er yfirstaðið svo annað slys geti ekki átt sér stað.
Ef sprautað er úr eftir dag 28 mun það taka mun meira á tíkina þar sem hún mun þá þurfa að ganga í gengnum fæðingu á andvana hvolpum. Þess vegna mælum við ekki með því að það sé gert svona seint.
Mælt er með að tík sé sónarskoðuð 10 dögum eftir lyfjagjöf til að sjá hvort nokkuð sé eftir í leginu. Gæti þurft að endurtaka ef talin er ástæða til.
Ófrjósemisaðgerðir:
Ófrjósemissprauta/pillan fyrir tíkur: (Promon vet og Covinan) Mögulegt er að nota hormónalyf í sprautuformi til að koma í veg fyrir lóðarí hjá tíkum. Þetta lyf þarf að gefa á 5 mánaða fresti og hægt að gera eins lengi og áhrifana er óskað. Við erum ekki mjög hrifin af notkun þessa lyfs og látum fólk alltaf vita af hættulegum aukaverkunum sem tengjast notkunar á því. Sýnt hefur verið frammá að notkun lyfsins eykur hættuna á júgurkrabbameini og þegar hætt er á getnaðarvarnarlyfi er aukin áhætta á legbólgu.
Geldingastafur fyrir rakka: Þetta lyf er tiltölulega nýtt á markaðnum fékk leyfi árið 2007.
Lyfið heitir Suprelorin og er það lyf sem sett er undir húð annað hvort í hnakkadrambið eða við naflasvæðið með nál sem er á stærð við örmerkingar nál. Úr þessu skammtast lyf sem hindrar myndun af hormónunum FSH og LH sem myndast í heiladyngli sem leiðir til að minna af testosteron verður í blóðinu og því minnkandi kynhvöt og sæðisframleiðsla. Hægt er að nota lyfið fyrir alla heilbrigða hunda sem hafa náðkynþroska.
Það tekur lyfið um 6 vikur að ná fullri virkni og eftir það virkar það í 6 mánuði eða 1 ár eftir því hvaða ósk um tímalengd er valin. Algengast er að velja 6 mánuð fyrir fyrsta skipti en svo er hægt að velja á milli hvora lengdina maður vill.
Lengdin á virkninni er mismunandi eftir stærð hundsins og virkar oft skemur hjá stærri tengundum en þeim minni. Við notkun minnka eistun og skreppa saman og á þessu tímabili eru hverfandi líkur á að þessir hundar geti gert tík hvolpafulla. Eftir að notkun stafsins er hætt getur það tekið nokkra mánuði til upp undir 1 ár að fá alveg eðlilega sæðismyndun. En hundarnir sem hafa fengið stafin eru full færir um að eignast hvolpa eftir notkun hans.
Ef um ræktunar hund er að ræða þá mælum við alltaf með að gæði sæðisins sé skoðað áður en stafurinn er notaður. Hugsanlegar aukaverkanir eru bólga og eymsli á stungustað sem getur staðið yfir í allt að 2 vikum. Þetta er oft hentug leið fyrir fólk sem ekki er visst hvort það eigi að gelda hundinn og ef það vill sjá hvort gelding hafi þau áhrif sem þau eru að óska eftir.
Ófjósemisaðgerð tíkur:
Í þessum aðgerðum eru eggjastokkar og leg fjarlægt. Hægt er að framkvæma aðgerð frá 5-7 mánaða og eldri. Tíkur má ekki taka úr sambandi ef þær eru að lóða eða ný búnar að lóða, fyrrnefnda sökum meira blóðflæðist á aðgerðar svæðinu og því aukin áhætta í aðgerðinni, en stuttu eftir lóðarí er enn mikið af hormónum í gangi og sumar tíkur jafnvel í enn meira hormónaójafnvægi ef með svokallaða gervióléttu. Það þarf að taka þær úr sambandi á miðjum tíðahring og er besti tíminn því í kringum 3-4 mánuðum eftir að lóðarí klárast. Við þetta mun tíkin hætta alfarið að lóða.
Engar vísbendingar eru um að ófrjósemisaðgerðir hafi neikvæð áhrif á atferli eða andlega líðan hjá tíkum og ekki er talið nauðsynlegt að tíkur eignist hvolpa einu sinni. Helstu ókostir við ófrjósemisaðgerð er að tíkur eiga það til að fitna eftir aðgerð, því er mikilvægt að passa fóður og magn, séstaklega fyrsta árið eftir aðgerð.
Annað sem getur sést en er þó sjaldgjæft er húðvandamál og aukin hætta á vanvirkum skjaldkirtli. Þvagleki getur komið upp síðar en þetta gerist hjá þeim tíkum sem eru með undirliggjandi vandamál þess eðlis fyrir aðgerð. Ef aðgerðin er gerð mjög snemma hjá stærri hundategunum getur það haft áhrif á liðbönd, liði og vaxtalínu lokanir í beinum.
Kostir við aðgerð er að það dregur úr hættu á júgurkrabbameini sem er algengasta krabbamein hjá tíkum. Þessi góðu áhrif eru mest ef ófrjósemisaðgerð er framkvæmd snemma á lífsleiðinni og allra mest ef gert er fyrir fyrsta lóðarí þá má segja að líkurnar fari nánast niður í 0. Nefna má eina tegund sem er í miklum áhættuhóp að fá júguræxli, það erPoodle og því er oft mælt með að taka þessa tegund úr sambandi fyrir fyrsta lóðarrí ef ekki á að nota tíkina til undaneldis.
Talið er að poodle tíkur sem eru ekki teknar úr sambandi séu 7 x líklegri að fá júgurkrabbamein en þær sem hafa verið teknar úr sambandi ungar. Einnig kemur þetta í veg fyrir eggjastokka og legæxli, blöðrur á eggjastokkum, legbólgu og gervióléttu. Eftir aðgerð þarf tíkin að vera með skerm/hundakraga í 7-10 daga eftir aðgerð svo hún geti ekki sleikt skurðsárið.
Gott er að fylgjast með og skoða skurðsárið 1 x á dag fram að saumatöku/saumatékki, ef útferð er frá sári eða það er mjög þrútið og aumt skal hafa samband við dýralækni. Saumataka 10-12 dögum eftir aðgerð. Tíkin fær bólgueyðandi verkjalyf fyrstu dagana eftir aðgerð og skal reyna að minnka æslagang og aðeins ganga við taum fram að saumatöku.
Gelding:
Hægt er að gelda rakka frá 5-7 mánaða og eldri. Þessi aðgerð er mun minna inngrip en ófrjósemisaðgerð hjá tíkum. Eistun eru fjarlægð í heild sinni út um 1 skurð rétt ofan við punginn. Helstu gallar: algengt er að hundar þyngist eftir geldingu og því mikilvægt að passa upp á hreyfingu, mataræðið og skammtastærðir, séstaklega er mikilvægt fyrstu 6-7mánuðina eftir aðgerð meðan efnaskipti líkamans eru að aðlagast breyttum aðstæðum.
Ef gelt er fyrir lokun á vaxtarlínum í beinum, geta hundarnir orðið hávaxnari en ella sökum þess að vöntun á testosterone veldur seinkun á lokun vaxtalínana. Sumir hundaeigendur sem eru með vinnuhunda vilja meina að ef geldir þá minnki það drifkraftin til vinnu s.s veiðihundar, hjálpar- eða smalahundar.
Þetta er þó ekki sannað og mætti alveg eins færa rök fyrir að geldir hundar gætu staðið sig betur við vinnu sökum þess að þeir verða ekki fyrir truflunum sökum kynorku. Kostir ef gelt er áður en hundurinn verður kynþroska er minna um að hundurinn merki, og sé með kynbundna hegðun eins og að riðlast, árásagirni á aðra karlhunda og strok að heiman. Ekki má gera ráð fyrir að geldingar leys hegðunarvandamál þó svo að þær leiði oft til að hundurinn verði rólegri.
Gelding fyrirbyggir eistnakrabbamein, perianal krabbamein, blöðruhálskirtlastækkun blöðruhálssýkingar og krabbamein. Aðrar ástæður sem má nefna er að gelda dýr sem eru með arfgenga sjúkdóma eða árásagjörn dýr sem ekki er ætlast til að eignist afkvæmi.
Dæmi um sjúkdóma sem er verið að koma í veg fyrir með ræktun eru fjölmargir t.d gelda skal alla hunda sem eru eineistungar sökum þess að þetta vandamál erfist og líka sökum þess að aukinn hætta er á eistnakrabbameini í eistanu sem er í nárasvæði eða í kvið.
Eftir aðgerð mun hunduinn þurfa að vera með hundakraga/skerm í 7-10 daga svo hann geti ekki sleikt sárið. Fylgjast skal með skurðsárinu 1 x á dag, sárið á að vera þurrt og hreint. Ef einhver aukinn útferð s.s gröfur, blæðing, mikil bólga, roði eða eymsli frá skurðsárinu hafið samband við dýralækni. Hundurinn fær bólgueyðandi verkjalyf í nokkra daga eftir aðgerð. Algengast er að saumurinn sé allur innanhúðar og þarf því ekki að taka nein spor, en auðvita er fólk velkomið með hundinn í saumatékk 10-12 dögum eftir aðgerð.
Best er að hundurinn sé bara hreyfður við taum fram að saumatékki, því getur orðið of mikið álag á sauminn ef hann fær að hlaupa og hoppa um frjáls. Finnst við hæfi að komi fram að öllum aðgerðum fylgir einhver áhætta, þá helst svæfingin og blæðingarhætta í aðgerðinni þó svo að sú hætta sé mjög lítill hjá ungum heilbrigðum dýrum
Mögulegir fylgikvillar sem geta komið upp eftir geldingar/ófrjósemisaðgerðir
- Verkir. Algengt, yfirleitt yfirstaðið 1-3 dögum eftir aðgerð
- Blóðfylltur pungur: ekki algengt, en getur gerst. Algengar hjá stærri hundategundum og eldri hundum. Þetta getur verið óþægilegt og þurfa þeir lengri tíma á verkjalyfjum, en á nokkrum vikum mun líkaminn ná að taka upp blóðið. Ef þetta gerist á að hafa samband við dýralækni
- Mikill blæðing frá skurðsári. Sjaldgæft. Það telst eðlilegt að það komi kannski einn og einn dropi frá skurðsári fyrstu klukkustundirnar eftir aðgerð. En ef blæðir meira er það óeðlilegt. Ástæðurnar geta verið undirliggjandi storknunarvandamál annað hvort meðfædd eða eftir rottueiturseitrun, vöntun á blóðplötum eða mistök í aðgerð.
- Niðurbrot á vef og saumarnir losna / Sýking. Gerist yfirleitt ef ekki er hugsað rétt um sárið, dýrið sleikir það, eða er baðað, óhreinindi í sárinu. dýrið fær að hlaupa um og ærslast. Þó eru til sjúkdómar sem valda seinkun á sárgróanda sem geta verið orsökin og má nefna hypoadrenocoticism og aðrir ónæmisbælandi sjúkdómar, og aukin sýkingarhætta er hjá dýrum sem eru með sykursýki.
- Bólguviðbrögð við saumunum. Sést yfirleitt ekki fyrr en um 6-7 dögum eftir aðgerð og þá verður bólga undir skurðsárinu. Ekki er roði né eymsli við viðkomu. Bólgan getur verið til staðar í allt að 3-5 vikur eftir aðgerð, en þá eru saumarnir að fullu uppeyddir. Mjög sjaldgæfir fylgikvillar í tengslum við aðgerðir almennt
- Nýrnabilun. Mjög sjaldgæft en ef dýr eru eldri en 8 ára eru þau í auknum áhættuhóp. Dýralæknar mæla yfirleitt með því að tekin sé blóðprufa af eldri dýrum sem koma í aðgerðir. Í þeim tilfellum þar sem dýr eru með lélegri nýrnastarfsemi, geta lyf sem tengjast svæfingunni leitt til lækkunar á blóðþrýstingi sem getur ýtt undir meiri skaða á nýrnavefnum. Einnig geta verkjalyf sem notuð eru í aðgerðinni og sem dýrin fá með sér heim eftir aðgerð haft neikvæð áhrif á nýrun. Ákveðnar tegundir s.s English Bull Terriers, Shar Peis, Beagles, Basenjis, Cairn Terriers, Tibetan Spaniels, Dobermanns, Elkhounds, Samoyeds og fleiri, er aukinn hætta á meðfættum arfgengum sjúkdómum í nýrunum, sem getur því uppgötvast í tengslum við aðgerðir. Ef skyndileg nýrnabilun á sér stað eftir aðgerð. Þá koma einkennin í ljós 24-72 tímumeftir aðgerð, þau geta þá sýnt einkenni eins og að drekka óvenjulega mikið (meir en 100ml/kg á 24tímum), eða vilja ekki drekka neitt, borða lítið og geta kastað upp, oft mjög dauf, og þurr. Blóðprufur fyrir aðgerð myndu fanga upp ef léleg nýrastarfsemi og hægt er þá hægt að meta hvort eigi að gera aðgerð og ef aðgerð er gerð er tekið tillit til þessa.
- Skyndilegur dauði í svæfingu. Rosalega sjaldgæft. En búast má við að allir dýralæknar upplifi það á sínum ferli að fá skyndilegan dauða í svæfingu hjá dýri sem virðist við skoðun fyrir aðgerð alveg heilbrigt. Ekki alltaf er hægt að finna út hvað er það sem olli þessu, annað hvort undirliggjandi sjúkdómur eins og hjartatruflanir, blóðtappi til hjarta eða lungu, slag (blæðing í heila), dýrið fær bráðaofnæmi gegn lyfjunum sem notuð eru í svæfingunni eða dýrið kastar upp og andar að sér ælunni. Sem betur fer er þetta mjög sjaldgjæft. mögulegt er að senda dýr í krufningu en alls ekk alltaf er hægt að finna út orsökina.
Það var kominn tími á nýja og flotta heimasíðu, svo við fengum snillingana frá Allra Átta til að setja upp glæsilega og snjallvæna vefsíðu. Allra Átta hefur smíðað marga flotta vefi og sérhæfa sig í vefsíðugerð, leitarvélabestun, wordpress vefhýsingu og allri almennri markaðssetningu á netinu.
Vefurinn keyrir á WordPress og sér Allra Átta um að hann sé í öruggri hýsingu.
Við þökkum fyrir nýja vefinn og vonum að hann þjóni núverandi og verðandi skátum með glæsibrag.
Vefur Allra Átta er hér: www.8.is
Aðalfundur 2018 fer fram miðvikudaginn 21. febrúar 2018 kl. 20:00. Samkvæmt lögum félagsins um kosningarétt hafa félagsmenn, 25 ára og eldri, auk eins forráðamanns kosningarétt, en aðrir geta setið fundinn sem áheyrnarfulltrúar. Sjá nánar í grein 3.3. úr lögum félagsins:
Enginn einn forráðamaður getur farið með fleiri en eitt atkvæði á aðalfundi. Fulltrúi úr stjórn á seturétt sem áheyrnarfulltrúi á aðalfundi. Félagsstjórn er heimilt að bjóða öðrum að sitja aðalfund sem áheyrnarfulltrúar. Áheyrnarfulltrúar hafa málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt.
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:
a) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
b) Skýrsla stjórnar.
c) Skýrslur og gögn skoðuð
d) Umræður um framlagðar skýrslur.
e) Lagðir fram yfirfarnir ársreikningar félagsins
f) Lagabreytingar.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Recent Comments